Forsíða

Úr Nýsköpun.org
Stökkva á: flakk, leita

Efni vefsins

  • Lýsing á núverandi umhverfi til nýsköpunar hérlendis.
  • Hugmyndir að endurbótum á því umhverfi.
  • Vegvísar fyrir þá aðila sem geta bætt umhverfi til nýsköpunar hérlendis.
  • Ýmsar gagnlegar upplýsingar tengdar nýsköpun.

Leggðu þitt af mörkum

Nýsköpun gegnir lykilhlutverki við að byggja upp fjölbreytt og sveigjanlegt atvinnulíf á Íslandi.

Hlutverk þessa vefs er að stuðla að því að á Íslandi verði besta hugsanlega umhverfi til nýsköpunar.

Nánar um mikilvægi nýsköpunar.

Um Nýsköpun.org

Þessi vefur er opinn vettvangur fyrir hugmyndir, upplýsingar og umræður um nýsköpun.

Þátttaka í umræðum og uppbyggingu efnis á vefnum er öllum opin, en að sama skapi tryggt að að honum komi áhrifa- og hagsmunaaðilar þannig að sú umræða og uppbygging skili árangri.

Vefnum er m.a. ætlað að kortleggja núverandi umhverfi til nýsköpunar og hvað betur mætti fara. Til þessa umhverfis teljast m.a. landslög, sjóðir, sprotafyrirtæki, frumkvöðlar, samtök aðila, stjórnvöld, ýmsar stofnanir, háskólar, fjárfestar, starfsfólk, samtök vinnuveitenda og launþega, lífeyrissjóðir, ofl.

Vefurinn mun einnig safna upplýsingum um aðferðir og árangur annarra landa í því að bæta umhverfi til nýsköpunar.

Í tengslum við vefinn er jafnframt rekið tengslanet, þar sem einstaklingar, frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar og stofnanir geta komið sér og aðkomu sinni á framfæri og stuðlað þannig að uppbyggilegri tengslamyndun.

Efnisflokkar

Bakhjarlar

Að þessum vef kemur fjöldi einstaklinga, auk þess sem eftirtalin fyrirtæki og stofnanir hafa þegar lýst stuðningi við framtakið:

Mynd:Logos.png

Þessi listi er ekki endanlegur og öllum frjálst að skrá sig á hann.

Tenglar